Ég heiti Jökull Másson og er fæddur þann 19. desember árið 1988. Ég hef búið alla mína ævi í Hafnarfirði, nánar tiltekið í Setberginu.
Ef við eigum að fara yfir skólagöngu mína þá má segja að ég hafi hafið hana í leikskólanum Hörðuvöllum við tjörnina í Hafnarfirði, þar var ég alla mína leikskóla göngu. Þegar leikskóla var lokið lá ekkert annað við en að fara í Setbergsskóla og var ég þar í ein tíu ár. Vorið 2004 lauk ég grunnskólaprófi eða samræmduprófunum eins og þetta er orðið í dag. Sama haust hóf ég nám við Flensborgarskólann í Hafnarfirði á Náttúrufræðibraut, en á vor önn 2007 ákvað ég að skipta um braut og færði mig yfir á Viðskipta- og hagfræðibraut, sem ég lauk síðan með stúdentsprófi vorið 2009. Næsta haust hef ég nám við Lagadeild Háskóla Íslands þar sem ég mun fyrst læra til BA prófs í lögfræði en markmiðið er að ljúka ML námi þaðan.
Haustið 2001 var ég neyddur á einn fund hjá Björgúlfi (unglingadeild Björgunarsveitar Hafnarfjarðar) og endaði það þannig að ég starfaði með deildinni allt til 2005 en þá færði ég mig upp í nýliðana sem ég lauk svo vorið 2007. Nú er ég orðinn fullgildur meðlimur Björgunarsveitarinnar og þetta er eitt af helstu áhugamálum mínum og nú þegar ég hef verið þarna í nokkur ár hef ég lært ýmislegt og vona að ég læri meira á næstu árum.
Helstu áhugamálin mín eru björgunarsveitin, ljósmyndun, vefsíðugerð og ferðalög. Ég keypti mér Canon EOS 350D haustið 2006 og síðan þá hef ég haft talsverðan áhuga á ljósmyndun og hef mikið verið að taka myndir í skólanum og raunar er ég alltaf með myndavélina á mér eða svona næstum. Vefsíðugerð hefur verið áhugamál hjá mér síðan 2003 þegar ég byrjaði í Vefsíðugerðar áfanga í Setbergsskóla.
Einnig hef ég haft áhuga á Formúlu 1, en þar hef ég haldið með nokkrum ökuþórum í gegnum tíðina en þó alltaf haldið mig við sama liðið. Ég held sem sagt með McLaren og núverandi ökuþór sem ég held uppá er Lewis Hamilton, en einnig finnst mér gaman að sjá þegar Kimi Räikkönen ber sigur úr bítum, enda gamall McLaren ökuþór. Upphaflega byrjaði ég að horfa á Formúlu 1 og halda með Mika Häkkinen en það breyttist þegar hann hætti og ég fór að skipta um ökuþór. Það má segja að Formúlan sé eina íþróttin sem ég fylgist með, en ég er farinn að hafa gaman af því að fylgjast með íslenskum fótbolta. Ég fór að fylgjast með fótbolta vegna gæslu verkefna hjá björgunarsveitinni. En ég hef nú gaman af því að fylgjast með stöðunni í deildinni og held þar með FH. Ég mæti einnig á flesta heimaleiki liðsins en þar er björgunarsveitin með gæslu.
Ég hef mjög gaman af tónlist en ég hlusta kannski ekki á nákvæmlega sama og flestir aðrir á mínum aldri en mínir uppáhalds tónlistarmenn eru Bubbi Morthens og Johnny Cash ásamt mörgum öðrum.
Ég hef haldið úti þessari blog síðu síðan í maí 2004, en hér er hægt að fletta upp í flestum færslum sem ég hef sett inn, en í júlí 2007 hrundi tölvan sem hýsir síðuna og þá töpuðust nokkrir mánuðir af gögnum, en ég gat takmarkað sakaðan með því að kíkja á gömul afrit og færa þau aftur inn.
Meira hef ég ekki að segja um mig, en ef það vakna upp spurningar eða einfaldlega að þig langar að hafa samband við mig þá er ég með farsíma og númerið í honum er 659-1332. Einnig er ég með tvö vefpóst, jokull.masson [hjá] gmail.com svo hef ég líka msn netfang jokullm [hjá] hotmail.com.

