Nú hefur verið mikið spáð í það hvaða flokkar og hverjir munu mynda næstu ríkisstjórn sem væntanlega mun sitja fram að kosningum í vor. Helst hefur verið talað um það að Samfylking og Vinstri grænir muni mynda hana. Þannig að mér datt í hug að stilla upp minni hugmynd að ríkisstjórn sem þessir tveir flokkar munu setja fram. Inn í mína getgátu vantar Utanríkisráðherra, en ég bæti því kannski inn ef mér dettur einhver í hug sem mér finnst passa í það embætti, Ingibjörg gæti svo sem tekið það og farið í veikindar frí og á meðan gegnir einhver annar hennar embætti. Einnig setti ég inn einstakling í embætti Heilbrigðisráðherra, sem ekki situr á þingi, þannig að hann væri þá utanþings ráðherra.
Forsætisráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir
Fjármálaráðherra
Steingrímur J. Sigfússon
Viðskiptaráðherra
Árni Þór Sigurðsson
Utanríkisráðherra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (í veikindar leyfi – ólíklegt þó)
Dómsmálaráðherra
Lúðvík Bergvinsson
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Ögmundur Jónsson
Heilbrigðisráðherra
Dagur B. Eggertsson
Félags- og tryggingamálaráðherra
Kolbrún Halldórsdóttir
Samgönguráðherra
Kristján L. Möller
Menntamálaráðherra
Katrín Jakobsdóttir
Umhverfisráðherra
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Iðnarðarráðherra
Össur Skarphéðinsson
Ég er nemandi í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, til þess að komast úr Setberginu þar sem ég bý, þarf ég að ganga um 20 mínútna leið upp í skólan hjá mér. Þetta er ekki hægara sagt en gert, nú þegar ástandið er eins og það er í dag. Hálkan sem nú er úti er stór hættuleg, nánast lífshættuleg.
Megnið af þeirri leið sem ég þarf að fara í skólan, er hvorki sönduð né söltuð. Þetta finnst mér mjög lélegt af bæjar- og skólayfirvöldum. Nemendur í Öldutúnsskólanum, þurfa einnig að fara þessa leið í skólann og því er ég mjög hissa yfir því hve illa er staðið að því að gera gönguleiðir greiðfærar fyrir okkur sem eru ekki akandi, til að mynda finnst mér heldur lélegt að fara akandi í skólan þegar maður býr svona nálægt skólanum sínum.
Þessi færsla er nú bara gerð til þess að ég geti fengi útrás og lýst yfir furðu minni á því hve illa er hugsað um námsmenn sem vilja ganga í skólann. Þetta er a.m.k. mál sem mér finnst ætti að liggja ofar á baugi en margt annað sem gert er dags daglega í bæjarfélaginu. Koma svo, sanda betur!
Þessu er þá lokið. Geir er búinn að tilkynna það að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki orðið við þeirri beiðni Samfylkingarinnar að leyfa þeim að stjórna ríkisstjórninni. Þannig að þessu stjórnarsamstarfi er þá endnalega lokið. Nú ætla ég að gera þá kröfu að fólk hætti að safnast saman og mótmæla, það er fátt annað eftir en að víkja seðlabankastjórn úr embætti og ég trúi ekki öðru en það verði gert á næstu dögum.
En hvað ætli veði næsta stjórn fram að kosningum, en mér skilst að það þurfi a.m.k. fimm vikur til að undirbúa þær, þannig að við þurfum að sitja uppi með einhverja hálf slappa stjórn þar til. Spurningin er samt sú hvort það verði ekki þjóðstjórn, þó ég hafi túlkað orð Geirs þannig að hann sæi fyrir sér þjóðstjórn með aðkomu flestra flokka, en mér fannsta hann gefa það til kynna að hann væri allt eins til í að sleppa Samfylkingunni út úr því samstarfi. Nú er bara að bíða og sjá hvað restin af deginum ber í skauti sér.
Ég er mjög mikið með hugann við stjórnmál þessa daganna, einnig er tilvalið að nýta sér þessa bloggsíðu mína til að skrá niður hugleiðingar um atburði líðandi stundar.
Í gær tilkynnti Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptamálaráðherra um afsögn sín úr því embætti. Þetta gerði hann til þess að axla sína ábyrgð á hruni bankanna og því ástandi sem hefur skapast á Íslandi á stíðustu mánuðum. Þá vakna upp ýmsar spurningar, afhverju Björgvin sé að gera þetta? Ég hef mikið spáð í þessu, er þetta dirfska, sjónarspil til að koma einhverju öðru í framkvæmd eða er þetta upphafið að kosningabaráttu Björgvins?
Ef ég skoða þetta aðeins nánar, þá er það kjarkur eða dirfska að segja af sér miða við forsögu þess að ráðherra segi afsér, það eru fá dæmi um það á íslandi, aðeins átta hafa sagt af sér síðan á þriðjaáratugnum. Þannig að það að segja afsér hefur ákveðna merkingu hér, það er ekki daglegt brauð, en það að segja upp yfirmönnum fjármálaeftirlitsins er líka ákvðeinn kjarkur að standa fyrir. Björgvin stóð sig því sómasamlega í því að axla þá ábyrgð sem hann taldi sig bera.
Þá spyr ég mig samt, er þetta sjónarspil? Er þessi afsögn Björgvins blekkingar leikur Samfylkingarinnar til þess að komast í betri stöðu, eru þeir að knýja Davíð og seðlabankastjórn burt? Eða er málið eins og fjölmiðlar hafa gefið til kynna í dag, það að Samfylkinginn sé að plotta sig samann með Vinstri grænum um það að mynda minnihluta ríkisstjórn með stuðningi Frjálslyndaflokksins og Framsóknarflokksins. Þannig gæti þessi afsögn Björgvins hafa verið fórn í þágu flokksins, til þess að koma flokknum betur að í íslenskri pólitík, og gera Ingibjörgu Sólrúnu að forsætisráðherra, en henni virðist hafa dreymt um það starf ansi lengi. Þetta er einn möguleikinn í þessu flókna tafli, en það flækist bara með hverjum deginum.
Svo er það vissulega síðasti möguleikinn og sá sem mér finnst persónulega líklegastur. En í þeim möguleika á ég við það að Björgvin sé að undirbúa sig fyrir komandi kosningar, mér finnst ekki ólíklegt að hann setji stefnuna á formannsstól Samfylkingarinnar. Þannig sé hann núna að sýna fólki fram á það að hann sé ábyrgur og axli þá ábyrgð sem á hann er sett. Þetta er þá þannig séð, mjög vel útfærð herferð hjá honum, en hvort honum takist að nýta sér hana ef þetta er það sem hann stefnir að, það er annað mál.
Annars verður gamann að sjá hvernig dagurinn þróast og eins og staðan er á mér og því sem er að gerast á ég eflaust eftir að vilja tjá mig um það sem er að gerast í dag. Vona svo að þetta verði upphafið að því að ég verði virkur að blogga svona í fyrsta skipti síðan ég opnaði þessa síðu 2004.
Þessa viku sem leið hefur fátt annað komist að í fréttum og raunar í allri þjóðfélagslegri umræðu, en þessi mótmæli sem hafa verið vítt og breitt um borgina. Sjaldan eða aldrei hefur samfélagið logað eins mikið og þessa viku, þetta minnir mig einna helst á víkingaöld, þegar allt logaði í bardögum. Kannski þetta fylgi þessum (útrásar-) víkingum.
Annars var ég að hugsa um mótmælin, þetta hefur heldur betur verið misjöfn mótmæli. Allt frá friðsamlegum samkomum sem Hörður Torfason hefur staðið fyrir í allan vetur, og svo allt upp í hörkuleg og hættuleg mótmæli. Ég skil mjög vel mótmælin sem Hörður hefur staðið fyrir og get tekið undir mikið af því sem komið hefur fram á þeim, en mótmælin sem hafa farið fram með ofbeldi og ruddaskap get ég ekki skilið.
Hvað fær mannfjöldinn áorkað með því að brenna Oslóartréð sem tengist jólahátíðinni og friðinum sem kemur með henni, þetta er að mínu mati óvirðing við Norðmenn sem og jólahátíðina. Einnig fannst mér stórmerkilegt hvernig reynt var að bera eld að alþingis húsinu, hverju værum við bættari ef að alþingishúsið væri brennt til kaldra kola? En það sem er náttúrulega sorglegast af öllu, það er það, að það séu til menn sem eru vís vitandi að ráðast á lögregluna með því að grýta hana með grjóti, lögreglan er ekkert annað en menn að vinna sína vinnu, þetta fannst mér ótrúlegt að sjá og upplifði mig eins og ég byggi í þróunarlandi þar sem ástandið væri verra en vont.
Annars fannst mér það ekki bara mótmælendur sem gengu of langt, en vissulega gengu þeir helst til of langt vegna upp magnaðar reiði sem fjölmiðlar, stjórnvöld, lögregluyfirvöld og aðrir mótmælendur hafa smá saman magnað upp í vetur. Kannski má segja að upphafið hafi verið þegar pipar úða var beitt á mótmæli vörubílstjóra. En þegar ég nefni pipar úðan má alveg nefna það að lögreglan gekk heldur langt í notkunn sinni á pipar úða, margir sem fengu ekki tækifæri á að bakka og hörfa áður en þeir fengu úðann beint í andlitið. Einnig var það áberandi hve margir ljósmyndarar og yfirleitt fólk með myndavélar urðu mikið fyrir piparúðanum. Svo gengu sumir laganna verðir lengra en þeir hefðu átt að gera, en í öllum hópum eru svartir sauðir en það verður að taka á þeim og þetta á jafnt við lögrelgu og mótmælendur.
Annars hef ég áhgua á því að fylgjast með hvernig málin þróast hér á skerinu, þessi mótmæli hafa a.m.k. vakið mikla athygli og á örugglega eftir að sitja lengi – um alla ævi – í þeim sem upplifðu þau. Mér fannst það einnig mjög merkilegt að sjá það í fréttunum að táragasi hafi verið beitt í fyrsta skipti í almennum mótmælum í Reykjavík í síðan Atlandshafsbandalaginu var mótmælt árið 1949.
Þetta hefur verið ágætlega viðburðarríkur dagur í Íslenskum stjórnmálum. Í fimmta sinn í sögu lýðveldisins segir ráðherra af sér. Í morgun sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptamála ráðherra af sér til að taka ábyrgð á þeim hlutum sem gerst hafa á Íslandi síðustu mánuði. Þetta er fyrsta liðurinn í því að stokka upp stjórnkerfinu og hreinsa til í því.
Nú er ég mikið að hugsa um þetta og spá í það hvort þetta verður til þess að ríkistjórnin falli eða hvort núverandi ríkisstjórn taki til í stjórnkerfinu áður en þeir láta af völdum í Maí. En ég ætla að spá því að stjórn Seðlabankans verði látin fara eins og hún leggur sig, en það mun víst vera krafa frá yfirmönnum Samfylkingarinnar ef marka má fréttaflutning í dag. En einnig er þetta leið til þess að lægja öldur í samfélaginu, og hægja á mótmælendum. Einnig fynndist mér ekki ólíklegt að Árni verði látinn taka pokann sinn í Fjármálaráðneytinu.
Þessar hreynsanir eru sennilega bara byrjuninn á því sem koma skal, en það er nú samt ekki víst að þetta sé það besta sem getur komið fyrir landið að skipta um þá menn sem eru inni málunum núna, því það hoppar víst enginn inn og út úr þessum störfum svona sí svona. Annars er þetta krafa þeirra sem hafa verið að ganga lengst fram fyrir hönd þjóðarinnar í mótmælum hér og þar um borgina, en þau eru vissulega sér kapituli í bloggfærslu og kannski ég láti verða af því á morgun að segja mína skoðun á þeim.
Nú er bara spurnining hvernig þjóðinni reiðir af eftir að allir æðstu stjórnendur landsins verða látnir fara og hvort nýjir stjórnendur geti gert eitthvað meira sem þeir gömlu gátu ekki.
Fjölmiðlar hafa mikið fjallað um Barack Obama, verðandi forseta Bandaríkjanna. Sú mikla fjölmiðla hefur haft í för með sér miklar væntingar til Obama af hálfu almennings, en þar spilar umfjöllunninn haft mikið að segja.
Maður ársins hjá Time
Obama var í byrjun ársins útnefdur maður ársins af tímaritinu Time. Þessi útnefning setur mikla pressu á Obama og það að hann standi undir þeim væntingum sem settar eru á herðar honum. Í útnefningu Time á Obama, segir: „Sjálfstraust til að rissa upp metnaðarfulla framtíðarsýn á erfiðum tímum.“ Enn fremur segir í umfjöllun Time að Obama hafi vakið upp von í hjörtum Bandaríkjamanna að honum takist þau ætlunar verk sitt sem forseti Bandaríkjanna. Time hefur þó áður útnefnt verðandi forseta mann ársins en það gerðu þeir einnig þegar Bill Clinton var kosinn forseti árið 1993, en Georg Bush varð aftur á móti sitjandi forseti þegar hann var útnefndur maður ársins hjá Time. Þannig að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þessi útnefning hefur sett mikla pressu á verðandi forseta, en það má segja að Obama sé mögulega meiri vonarstjarna en margir forverar hans.
Obama valinn dáðasti maður Bandaríkjanna
Dagblaðið USA Today ásamt Gallup gerðu könnun um dáðasta mann Bandaríkjanna. Obama skaraði framúrí karlaflokki í þessari könnun en 32% þeirra sem svörðu nefndu hann, næsti maður á eftir Obama í könnunni var Bush með 5% atkvæða. Þessi könnun er árlegur viðburður hjá USA Today og eru niðurstöðurnar birtar annan dag jóla. Í kvennaflokki sigraði Hillary Clinton verðandi utanríkisráðherra, í ríkisstjórn Obama, en þess má geta að hún hefur verið í 13 af síðustu 16 skiptum dáðasta kona ársins samkvæmt þessari könnun.
Aðrar kannanir sem fjölmiðar hafa gert
Mikið hefur verið um allskynns kannanir í fjölmiðlum vestanhafs, enda mikið fjallað um valdatöku Obama í embætti forseta landsins. Í könnun sem The Wall Street Journal og NBC gerðu, voru 71% kjósenda ánægð með þau verk sem Obama hefur framkævmt síðann hann náði kjöri. Þetta er bæði meira en Bush og Clinton náðu áður en þeir tóku við embætti Bandaríkjaforseta. Einnig töldu 80% aðspurðra að Obama myndi bæta ímynd Bandaríkjanna útávið, en 77% þeirra sem svörðu töldu að stærri vandamál biðu Obama hefðu beðið eftir nokrum öðrum forseta.
Önnur könnun var gerð af CNN en þar var verið að mæla vinnsældir Obama til að miða við fyrr kannanir sem gerðar hafa verið þegar nýjir forsetar hafa tekið við embætti. Obama náði svipuðum vinnsældum og Regan þegar hann var kjörinn forseti, en enginn forseti á eftir Regan hefur náð jafn miklum vinnsælum, þannig að Obama er vinnsælasta forseta efnið síðan árið 1981.
Þá er ég búinn í prófum og kominn í jólafrí. Ég veit ekkert hvernig prófin gengu en maður vonar bara það besta, enda ekki við öðru að búast, skrítið ef maður myndi ekki vona það besta.
Annars tekur bara jólaundirbúningur, vinna og kæruleysi við. Ég er t.d. að fara til Kaupmannahafnar síðar í þessum mánuði svo það er nóg að gera. Samt ætla ég nú að reyna að sofa bara út á morgun og vera kærulaus og latur. Ætli það verði ekki einhver vinna upp í skóla í Draupni, held það en svo er það auðvita jólatrjáasalan og flugeldasalan hjá björgunarsveitinn, allt þetta venjulega.
Svo er það bara að ná sér í allar jólabíómyndirnar og koma sér í jólaskapið…. Best að byrja bara strax!
Þetta ár hefur byrjað frábærlega í Morfís, Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna. Ég er búinn að mæta á fjórar keppnir á þessu ári og hafa þær allar verið mjög áhugaverðar, sér í lagi langar mig að nefna það að í þremur af þessum fjórum keppnum hefur ræðumaður talað í 4 mínútur sléttar í báðum ræðum og já ég er að meina upp á sekúndu. Aftur á móti í fjórðu keppninni talaði einn ræðumaður í 4 sléttar í annari og einni sekúndu betur í þeirr næstu.
Miklar deilur hafa fylgt keppnunum í ár eða svona já, í tveimur keppnum hefur verið kært og bíður það niðurstöðunnar. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig það ver, en MR kærði úrslitin gegn FG og svo kærðu Hraðbraut úrslitin gegn FSN. Þannig að það má segja að þetta sé mjög spennandi ár.
Í upphafi ársins hélt Bubbi Morthens nýárstónleika ásamt Stórsveit Reykjavíkur, eins og flestir stórir tónleikar í dag voru þessir tónleikar teknir upp á myndband og hljóðritaðir. Þannig að nú um þessi jól ákvað Bubbi að blanda sér í jólaplötuslaginn og senda frá sér upptökuna af þessum tónleikum.
Þetta er tvöfalur diskur, annarsvegar geisladiskur með upptöku af tónleikunum ásamt öðrum dvd disk með myndefni af þeim. Ég ætla aðeins að velta geisladisknum fyrir mér hér á eftir.
Til að byrja með finnst mér rétt að minnast á það hve lagavalið er gott á þessum disk eða öllu heldur á tónleikunum sjálfum. Lögin fá öll að njóta sín og eru vel útsett í nýju útgáfunni.
Lagaröðin á diskinum er töluvert flott, maður byrjar rólega að hlusta og svo nær diskurinn miklu hámarki undir lokinn en endar svo á rólegu lagi þannig að maður getur næstum byrjað strax aftur á byrjun.
Undirritaður telur bestu lögin á þessum disk vera Kaupmaðurinn á horninu, Jarðarför Bjössa og Rómeo og Júlía. Sér í lagi má nefna Fjöllin hafa vakað sem er í einni flottustu útgáfu sem undurritaður hefur heyrt af því lagi. Þórir frá Stórsveit Reykjarvíkur á mikið hrós fyrir flottar útsetningar á lögum plötunnar. Svo á það vel við að enda á laginu Rómeó og Júlía sem er eitt af þekktari lögum Bubba og flestir landsmenn kannast við.
Enn og aftur sannar Bubbi það að hann er einn af vinnsælli tónlistarmönnum landsins og á þessum disk sannar Bubbi það að hann er mjög öflugur söngvari og sýnir með þessari plötu að hann getur tekið mörgum ef ekki flestum áskorun þegar að tónlist kemur.
Undirspilið á diskinum er hreint út sagt mjög flott, Stórsveit Reykjavíkur er mjög öflug og flott hljómsveit sem væri gaman að sjá taka upp fleyri svona verkefni. Þar fer Þórir Baldursson fremstur í flokki eins og fyrr hefur komið fram.
Svo má geta þess að þessi plata er mjög sérstök fyrir Bubba, en þetta er í fyrsta skipti sem hann gefur út sólóplötu sem inniheldur ekkert nýtt lag eða lag sem Bubbi hefur ekki áður sungið inn á plötu. Þannig að það gerir þessa plötu að mörguleiti frábrugna öðrum plötum.
Ég ætla að gefa þessari plötu fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Það sem dregur plötuna niður að mínu mati er það að mér finnst persónulega ekki gaman að hlusta á tal milli laga, en þó verður að taka mið af því þetta er tónleikaupptaka.
4/5 stjörnur!